Kílómetragjaldið útskýrt

Sláðu inn tvo álestra sem þú skráðir á Ísland.is og reikningana sem þú greiddir á milli þeirra. Þá sérðu hvað þú ókst í raun, fyrir hvað var innheimt og hvernig uppgjörsreikningur eða inneign verður til.

1Álestrarnir þínir tveir

Þú finnur þá á Ísland.is undir kílómetrastöðu ökutækisins.

Svona finnurðu álestrana á Ísland.is
  1. Skráðu þig inn á Ökutækin mín á Ísland.is (Mínar síður → Eignir → Ökutæki).
  2. Opnaðu ökutækið og veldu Kílómetrastaða. Þar sérðu alla álestra með dagsetningu og kílómetrastöðu.
  3. Sláðu inn tvo nýjustu álestrana sem gilda til útreiknings. Skráningar vegna viðgerða, tryggingatjóna eða umferðareftirlits lögreglu gilda ekki, svo slepptu þeim.

Enginn nýr álestur? Skráðu kílómetrastöðuna undir Skrá kílómetrastöðu á Mínum síðum eða í Ísland.is appinu. Sláðu inn stöðuna eins og hún birtist í mælaborðinu. Leyfilegt er að skrá á 30 daga fresti. Ef þú skráir ranga tölu geturðu skráð aftur sama dag, fyrir miðnætti, og þá gildir seinni talan.

Fyrri álestur
Dagsetning
Nýjasti álestur
Dagsetning

2Gjald á kílómetra

3Reikningar milli álestra

Svona finnurðu mánaðarreikningana
  • Í netbankanum er mánaðargreiðslan krafa frá Ríkissjóðsinnheimtum. Önnur gjöld ríkisins geta komið undir sama nafni, svo athugaðu að þetta sé kílómetragjaldið.
  • Reikningurinn sjálfur er í pósthólfinu á Ísland.is (Pósthólf). Einn reikningur nær yfir öll ökutæki sem skráð eru á þig, svo upphæðin í bankanum er samtala; notaðu upphæðina fyrir þetta ökutæki af reikningnum.

Sláðu inn báðar dagsetningarnar og þá birtast hér mánuðirnir sem þarf að fylla út.

4Uppgjör (reikningur eða inneign) valfrjálst

Ef þú hefur þegar fengið uppgjör eftir nýjasta álesturinn geturðu slegið það inn og borið það saman við útreikninginn. Settu mínus fyrir framan upphæðina ef um inneign er að ræða.

kr

Þetta er uppgjörið sem barst eftir nýjasta álesturinn.